Auglýsing

My stars

Könnun

Hefurđu klesst á eitthvađ í vetur

Klukkan

Innskráningar kubbur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Fyrirsćta

27. janúar 2007 klukkan 06:38

Góðvinur minn og félagi hann Hómer Sindrason er orðinn að fyrirsætu. Nánari upplýsingar er að finna á blogginu hennar Beggu hérna fyrir neðan!!!



Þetta er hann Hómer. Hómer hefur gaman af löngum göngum á ströndinni, að fara í heitt og gott bað, að borða rómantískan kvöldverð, brjóst, að horfa á sólina setjast, horfa út um gluggann og margt fleira. Nýjasta áhugamál Hómers er þó fyrirsætubransinn.


Hómer að borða rómantískan kvöldverð.


Heitt og gott bað


Hómer að horfa út um gluggann.


Horfa á sólina setjast.


Brjóst

Já og auðvitað eins og öðrum fyrirsætum finnst Hómer stundum gaman að djamma, og allra skemmtilegast finnst honum að dansa.


Hómer á djamminu

Fanný Mjöll Pétursdóttir
7 athugasemdir

Afmćlisstelpa

26. janúar 2007 klukkan 02:00
Þann 23. janúar árið 1987 kom lítil saklaus prinsessa í heiminn sem stækkaði óðum og varð að algjörri glæpakvendi!!!


Til hamingju með afmælið Bella mín Sjáumst á laugardaginn!!!

Fanný Mjöll Pétursdóttir
2 athugasemdir

Helgin!!!

15. janúar 2007 klukkan 15:06
Helgin er búinn að vera mjög fín, tók því samt frekar rólega. Á föstudagskvöldi var ég eitthvað að plebbast heima þegar Hrenni hringir í mig og segir mér að hann sé í bænum. Hann er nefnilega nýfluttur í Grundafjörð, árans vesen. Hann spyr mig hvort að ég nenni að gera eitthvað næsta kvöld, sem sagt á laugardagskvöldið. Og auðvitað segi ég já. Við ákváðum svo að tala við Beggu og Helgu og athuga hvort að þær vildu ekki koma eitthvað með okkur. Þær segja báðar já, þangað til að Helga hættir við því af þeirri ástæðu að hún sé að fara á date. DATE!!! Þetta er hneisa. Eins og það sé einhver ástæða til að sleppa því að hitta svona snillinga eins og okkur. En við ákváðum svo að fyrirgefa henni eins og snillingum sæmir. Já, og svo var hún Berglind eitthvað að vinna til 11:30 svo við gátum ekki sótt hana fyrr en þá. Þetta er hneisa!!! Svo að ég sótti hann Hrenna bara kl. 10:00 og vorum við eitthvað að plebbast þangað til að við náum í Beggu og þegar við erum að rúnta niður Laugarveginn segir Hrenni að hann þurfi að vera kominn heim til ömmu sinnar um miðnætti því að hann þurfi að skutla henni út á Keflavíkurflugvöll um morguninn og hann mátti ekki missa neinn fegurðarblund. Talandi um svikara. Og Begga þykist vera eitthvað þreytt. Ég á engin orð!!! Þetta eru allt svikarar!!! Svo skutla ég Beggu heim en hún á heima í bænum, og svo skutlaði ég Hrenna en hann hafði verið að heimsækja stelpu fyrr um kvöldið sem hann var að leigja með, nánar tiltekið rétt hjá Smáranum beint fyrir ofan kynlífsbúðina Amor. Talandi um að vera fastagestur í búðinni. Hann þarf ekki einu sinni að fara út til að fara í hana heldur bara að labba niður nokkrar tröppur. Svo þegar við erum kominn hjá Amor segir Hrenni að hann sé að verða bensínlaus og hvort að ég nenni að keyra á eftir honum upp á Select. Og eins og ég er góð vinkona þá gerði ég það og meira segja með mestu ánægju. Þegar við erum kominn upp á Select opnar Hreinn skottið óvart þegar hann er að fara út úr bílnum og nær ekki að loka því aftur. Hann hjakkast og hjakkast en ekkert skeður. Svo að hann þurfti að keyra með opið skott upp í Hafnarfjörðinn til ömmu sinnar. Vonandi svafstu vel Hrenni!!! Svo á sunnudaginn svaf ég bara út og hafði það gott, en um 16:00 fer ég til Fjólu systur minnar því að hún var búinn að bjóða okkur í mat. Svo um kvöldið horfði ég á Lord of the rings með henni. Vorum nýbúnar að klára fyrstu og byrjuðum á annarri. Snilldar myndir!!! Jæja nú er held ég bara allt komið sem ég vildi segja. Hafið það gott !!! Glottandi 
Fanný Mjöll Pétursdóttir
8 athugasemdir

Skólinn byrjađur!!!

10. janúar 2007 klukkan 04:19
Jæja, þá er víst löngu kominn tími til að blogga. Ég er búinn að eiga mjög fín jól og áramót og óska ég öllum gleðilegt nýtt ár. Ég var hjá mömmu og stjúpa um jólin ásamt Írisi systur minni og strákunum hennar þeim Pétri og Fannari. Svo um 9 leitið kom önnur systur mín hún Día ásamt kallinum sínum honum Dóra og börnunum þeirra þeim Sesari og Tönju. Um áramótin vorum við svo heima öll saman og fórum svo rétt fyrir miðnætti til frænku okkar og frænda í smápartý. Mjög mikið stuð. Já, ég get víst ekki kvartað, bara búinn að vera í fríi, þetta er í fyrsta sinn sem að ég hef ekki verið að vinna í jólafríinu mínu í mörg ár og ég get ekki sagt annað en að það hafi verið æðislegt. Svo hitti ég líka krakkana sem að voru með mér á Sóltúni, það var mjög gaman. Við fórum öll út af borða og svo fórum við á einhverja skemmtistaði. Ég var nú samt kominn frekar snemma heim, kom um fjögur leitið. Svo hef ég stundað bíóhúsin frekar stíft um jólin, hef held ég aldrei farið eins oft í bíó á eins stuttum tíma. Ég fór t.d. á Borat, The holiday, Eragon og Chiildren of men. Segið svo að ég leggi mig ekki fram um að styrkja bíóhúsin. En núna er skólinn byrjaður aftur og fékk ég 21 einingu inn í töflu, ég fékk: íslensku, sögu, sálfræði, þýsku, tvo áfanga í ensku og náttúrufræði. Ég byrja alltaf kl. 8:15 nema á þriðjudögum þá byrja ég kl. 9:55.  Ég er svona að vona að ég geti klárað næsta vor, ætlaði að reyna um næstu jól en ég held að það sé ekki möguleiki svo ég verð að bíta í það súra epli að vera lengur. En ég vill óska Oddný, Beggu, Viktoríu, Bryndísi, Dagný og þeim sem útskrifuðust á seinustu önn til hamingju!!! 


Ég læt hérna eina mynd úr útskriftarpartýinu hennar Beggu, það er ekki hægt að segja annað en að þar hafi verið stuð!!! Glottandi

Fanný Mjöll Pétursdóttir
6 athugasemdir

Ađ fara ađ sofa!!!

21. desember 2006 klukkan 07:26

Djöfull er ég ógeðslega ódugleg að blogga, er focking að meygla í þessu, nenni ekki að gera rassgat. Jæja en hvað um það, ætla nú að henda inn einni færslu. Fór í útskrift til Beggu í dag, mjög fínt. Hún var ótrúlega fín með húfuna sína og í nýja kjólnum sem hún fékk úti í London. Þar hitti maður nú líka eitthvað að fólki eins og t.d. Möggu, Hönnu Lóu, Sindra, Tinnu og fleiri að ekki sé minnst á hana Bínu og Ragnar sem eru foreldrar Beggu en þau eru alltaf geðveikt hress. Og pabbi hennar búinn að endurnýja alla dýru fiskana sína sem Begga og Sindri drápu hérna fyrir nokkum árum, þetta eru víst ógeðslega dýrir fiskar enda ótrúlega flottir. Já, það var megastuð í veislunni og svo fór maður eitthvað að plebbast, fór aðeins til hennar Birnu vinkonu minnar og lét hana fá skóna sína sem hún skildi eftir í bílnum mínum einhvern tímann í sumar. Svo fór ég bara heim og dreif mig að pakka blessuðu jólagjöfunum inn. Nei, nú lýg ég, first fór ég til Írisar systur minnar og við horfuð á Seinfeld enda snilldarþættir og svo auðvitað ANTM en þar er alltaf þvílíkt drama og með því að horfa á þáttinn þá fær maður sinn skammt af drama fyrir vikuna. Jæja, ætla bara að hafa þetta stutt í dag, aðallega svona að gera þetta fyrir alla þessa aðdáendur sem ég á en þeir eru nú orðnir helvíti margir. Svona er þetta, það er margt sem maður þarf að þola.!!! Nei, nei er nú bara að grínast. Já, en ég verð að hvetja alla að fara á síðuna til Beggu, hún er með ógeðslega fyndna klippu af einhverri geggjaðri kerlingu. Þið verðið að sjá það, ótrúlega fyndið.

Got to go to sleep!!!Saklaus

Fanný Mjöll Pétursdóttir
8 athugasemdir

Skúli naglinn!!!

18. desember 2006 klukkan 18:11

Nú fer bara að styttast í jólin, maður er búinn að sækja einkunnirnar og allt. Það gekk bara svona ágætlega, reyndar féll ég í einu fagi en það er nú líklega því að kenna að ég lærði ekki neitt fyrir það en ég náði 20 einingum og er bara frekar sátt þó ég hefði viljað ná 23 einingum. Annars er ekkert mikið að gerast, maður er bara eitthvað að chilla og rónast. Reyndar var ég búinn að plana spilakvöld fyrir nokkrar vinkonur mínar en maður verður bara að bíða rólegur þangað til að þau gömlu fara út á land. Þetta er í fyrsta sinn í 2 ár sem þau eru heima heila helgi og nú eru þau búinn að vera heima 2 helgar!!! Hvað er eiginlega í gangi??? Það er nú ýmislegt sem maður verður að láta bjóða sér þegar maður býr hjá HÓTEL MÖMMU. Nei, nei þau eru nú ágæt. Annars var ég bara að fara í gegnum skóladraslið, henda einhverju og geyma eitthvað fyrir þá sem eiga áfangana eftir sem maður er búinn með. Þetta sýnir bara hvað ég er yndisleg manneskja, alltaf að hugsa um aðra. Það er auðvitað enginn sem myndi mótmæla því, er það nokkuð? Ég var eitthvað að fíflast í Beggu í gær og fyrradag og þóttist vera gaur sem hét Skúli nagli og commentaði á bloggið hennar að hún væri ástin í lífi mínu og hvort að það væri nokkuð alvarlegt sambandið hjá henni og Sindra. Begga varð að vonum ótrúlega hrædd og var að spá í að kæra þennan pervert til lögreglunnar svo að ég neyddist til að segja henni að pervertinn væri ég. Þetta var samt dálítið fyndið. Þeir sem hafa áhuga á að sjá þetta snilldarverk verða að fara á síðuna hennar og kíkja, þið getið klikkað hérna niðri.

Fanný Mjöll Pétursdóttir
3 athugasemdir

Prófin loksins búinn!!!

14. desember 2006 klukkan 20:25

Jæja, það er víst löngu orðið tímabært að henda inn nýrri færslu. Prófin eru loksins búinn og nú er bara verið að bíða spennt eftir að sjá hvað maður fær nú út úr þeim Mér gekk svona ágætlega í öllu, nema veit ekki alveg með íslenskuna. Það kemur allt í ljós á morgun. Það er ekkert búið að vera mikið að gerast fyrir utan þessi blessuðu próf. Ég fór reyndar í bíó í gær með Beggu og Hrenna á myndina Holiday eða eitthvað svoleiðis. Hún var bara mjög fín. Eftir það sóttum við hana Helgu og tókum smá rúnt, Begga auðvitað flippaði og fór að kalla saklausar stelpur sem gengu eftir Laugarveginum hórur og hótaði þeim með rúðusköfunni minni sem er svona 1. m. á lengd með svaka kústi. Greyið stelpurnar urðu auðvitað rosalega hræddar og hlupu í burtu eins hratt og þær gátu til að vera ekki rasskeltar með kústinum ógurlega. Það var sem sagt mjög gaman. Svo um helgina er ég að fara í afmæli til hennar Brynju babe sem verður þá tvítug. Það verður auðvitað bara ógeðslega gaman. Þá hittir maður nú eitthvað af fólkinu sem var með manni í grunnskóla eins og t.d. Evu, Hildi, Öldu og einhverja fleiri. Annars er maður nú bara búinn að vera eins og einhver geðsjúklingur hlaupandi á milli búða í þeim tilgangi að kaupa gjafir handa öllu fólkinu sínu. Ég held að ég fari örugglega með rétt mál þegar ég segi að ég er að gefa um 20 manns. Svona er þetta þegar maður er vinsæll, það er ekki alltaf auðvelt!!! Nei, nei, ég á nú hvorki meira né minna en 5 systkini, mömmu, pabba, stjúpu, stjúpa og svo eiga systur mínar eldri 2 börn á kjaft svo þetta er farið að verða helvíti mikið sem maður er að kaupa um jólin. Það er nú samt alveg þess virði!!! Ég má nú heldur ekki gleyma að segja frá því að í nótt þegar við vorum að rúnta niður Laugarveginn, þá sáum við jólasveininn og sem betur fer var hann Hreinn með myndavél svo við náðum nú að smella af honum einni mynd.



Jólasveinar mega nú skemmta sér líka, er það ekki???Glottandi
Fanný Mjöll Pétursdóttir
6 athugasemdir

Hvar er pabbi???

05. desember 2006 klukkan 06:28


Berglind Rós Ragnarsdóttir er hér með að lýsa eftir föður sínum en þeir sem vita hver maðurinn er endilega hringið í hana eða sendið henni tölvupóst í netfangið hér að ofan, sem fyrst!!!. Hana langar svo að finna pabba sinn og því væri það frábært ef einhver myndi geta hjálpað henni. Reyndar er dagsetningin ekki alveg rétt, hún á að vera í mars 1986. Því miður náðist bara ein mynd af pabba hennar áður en hann yfirgaf móður hennar þetta kvöld en hún hjálpar ekki mikið, en vonandi kannast einhver við hann

Fanný Mjöll Pétursdóttir
4 athugasemdir

Nenni ekki ađ lćra!!!

05. desember 2006 klukkan 06:05

Jæja, þá er víst kominn desember og maður er byrjaður í prófum. Ég get ekki sagt annað en að ég er skíthrædd, enda ekki búinn að vera mjög dugleg að læra. Ég hef aldrei verið duglegri að stunda bíóhúsin eins og núna en ég fór á James Bond og einhverja jólamynd sem heitir Hátíð í bæ. James Bond var mjög fín en Hátíð í bæ eða ég held að hún heitir það var ekkert sérstök. Jæja, en nóg um það. Ég fór með Beggu og Margréti í Þjóðabókhlöðuna og ætlaði að fara að gera stórkostlega ritgerð en svo voru ekki þau gögn sem ég þurfti á bókasafninu svo ég fór eitthvað að plebbast, fröken B og M voru ekkert allof ánægðar með það, reyndu að halda því fram að ég væri að trufla þær í mikilvægum próflærdómi. ÉG??? Það getur bara hreinlega ekki verið, ég myndi aldrei gera neitt þannig, ég sem er svo róleg. Þetta er hneisa!!! Ég veit ekkert hvað þær eru að tala umGlottandi. Við vorum ekki lengi á Þjóðabókhlöðunni heldur fórum í Kringluna að kringlast og svo heim þar sem ég hef varla svo mikið sem litið í bók en ég er að fara í sögupróf á miðvikudaginn og er mjög hrædd, ekkert búinn að læra í vetur. En já, ekki mikið annað að segja nema nú þarf ég að fara að læra, læra, læra. Allir þeir sem eru að fara í próf, GOOD LUCK!!! Hina bið ég bara vel að lifa og vera dugleg að skrifa eða eitthvað svoleiðis ruglSvalur.

Fanný Mjöll Pétursdóttir
Engin athugasemd

Sek um stuldur

30. nóvember 2006 klukkan 12:10
Arg, ég er að verða geðveik, ég get ekki focking sofnað. Nú er klukkan orðinn 6 að nóttu og ég er búin að reyna að sofna í 5 klukkutíma. Hvað er eiginlega í gangi. Jæja, en fyrst ég gat ekki sofnað þá gerði ég slide show en þar sem ég átti ekki myndir sjálf fór ég í leiðangur og vona ég að Beggu, Bakkastelpunum og Jespesen fyrirgefi mér stuldurinn, ef ekki þá verða þær að láta mig vita. Ég vissi nefnilega ekkert hvað ég ætti af mér að gera. En eruð þið ekki ánægðar með showið. Ég held að mér finnist myndirnar af Hönnu Siggu lang fyndnastar þegar hún er á hjólinu niðri í bæ, það er svo ógeðslega fyndið. Ég meina hvaða hjól er þetta??? Og svo auðvitað myndirnar af Hönnu og Völlu í 80's. Þær eru líka ansi skemmtilegar Brosandi.

Fanný Mjöll Pétursdóttir
6 athugasemdir